Stefnumiðuð stjórnun: Fimm greiningarlíkön

  • Steinþórsson R
N/ACitations
Citations of this article
6Readers
Mendeley users who have this article in their library.

Abstract

Stjórnun gerir kröfu um að náð sé utan um mikilvægar forsendur og frumsetningar. Þetta á sérstaklega við um stefnumiðaða stjórnun. Til viðbótar við undirstöðuatriði stjórnunar er með stefnunni búið að marka frekar og skerpa á þeim forsendum sem taka á mið af við þróun viðkomandi starfsemi. Þessar forsendur gefa starfseminni grunngildi, ákveða sýn á fyrirtækið, tilgang þess og framlag til umhverfisins. Hvað það á þátt í að gera og hvað það verður að búa við. Fyrirtæki er umgjörð utan um kvika starfsemi og stöðugt þarf að takast á við breytingar hið ytra og hið innra. Með umgjörðinni er komið á böndum til að auðvelda meðferð og ráðstöfun þeirra auðlinda sem fyrirtækið nýtir til að ná tilgangi sínum. Árangurinn veltur á samstillingu milli þess sem fyrirtækið kann og getur og hver eftirspurn er í umhverfi þess. Stefnumiðuð stjórnun snýst á hverjum tíma um að ná sem mestum árangri í rekstri fyrirtækisins á grundvelli afstöðu um hvað fyrirtækið vill vera og vill verða. Þessi grein varpar ljósi á atriði, þætti og víddir sem skipta máli við stefnumiðaða stjórnun fyrirtækja. Eftir yfirlit yfir fagið er kynnt fjórvítt greiningarlíkan sem gefur yfirsýn yfir þau atriði sem draga þarf fram í greiningu á starfsemi ef stjórna á stefnumiðað. Fyrir hverja af fjórum víddum stefnumiðaðrar stjórnunar er síðan gerð grein fyrir sérstöku greiningarlíkani. Útgangspunkturinn er að stefnumiðuð stjórnun sé viðvarandi viðfangsefni hjá þeim fyrirtækjum sem ná árangri. Ætlunarverkið er að fræða lesandann um þau fjölmörgu atriði sem máli skipta við stefnumiðaða stjórnun.The main aim of this article is to present a framework that can be of use in understanding strategic management and doing strategy analysis. In the article a four dimensional view of strategic management is described and further developed into a framework to be used in strategy analysis. The four dimensional framework is then broken up and further developed into frameworks for each of the dimensions. The frameworks highlight aspects and issues that are important for an understanding how organizations are managed strategically, regardless of whether the focus is on activities in the past or present, or on preparing the organization for activities in the future.

Cite

CITATION STYLE

APA

Steinþórsson, R. S. (2003). Stefnumiðuð stjórnun: Fimm greiningarlíkön. Tímarit Um Viðskipti Og Efnahagsmál, 1(1), 27–54. https://doi.org/10.24122/tve.a.2003.1.1.5

Register to see more suggestions

Mendeley helps you to discover research relevant for your work.

Already have an account?

Save time finding and organizing research with Mendeley

Sign up for free